matarblogg

25. maí 2009 klukkan 14:03
Hér er eitt það allra skemmtilegasta blogg sem ég les!!

http://ellahelga.blog.is/blog/ellahelga/

Mæli með því, því Ella er snilldarkokkur.

þar til síðar
yfir og út
my sister Flo - matargat..
Sigríđur Harpa

mótmćli...

22. janúar 2009 klukkan 18:14
Það er langt síðan maður hefur bloggað.. hef satt að segja alls ekki nennt því..

en mig langar aðeins að tala um öll þessi mótmæli.

Mér finnst alveg gott og blessað að mótmæla, en þá innan skynsamlegra marka. T.d fannst mér gott mál að fólk kæmi með potta og pönnur til að vera með svolítinn hávaða.. fannst það gott mál. Mér finnst líka í fínu lagi að fólk gangi um með kröfuspjöl og hrópi vanhæf ríkisstjórn.. ef það er þeirra skoðun. Margt gott hægt að gera með góðum mótmælum.

Hins vegar verð ég að segja að ég er alls ekki sátt við þegar fólk snýr reiði sinni að löggæslu fólki landsins og beinlínis gerir í því að espa lögguna upp til að fá nú örugglega smá táragas á sig. Lögreglufólk er bara fólk eins og ég og þú, og margir hverjir þeirra eru í nákvæmlega sömu stöðu og aðrir á landinu. Þeir sem standa vörð á þessum mótmælum eru einfaldlega að sinna vinnunni.

Allavega. Mér finnst ekki rétt að verið sé að ráðast á þá. og ekki reyna að segja mér að lögreglan hafi bara spreyjað allt í einu piparúða eða einhverju þvílíku á alla.. ég fer ekkert ofan af því upptökin liggja ekki hjá þeim.

Svo er ég ekki alveg nógu hrifin af því að fólk skuli vera að hylja andlit sitt þegar það er að mótmæla.. hvað hefur þetta fólk að fela?

annað.. varðandi nýjar kosningar. já ok það má alveg færa rök fyrir því að það eigi að kjósa. En ég vil ekki kjósa flokka, ég vil kjósa fólk! ég vil kjósa fólk sem kemur með skýrar lausnir og talar hreint út. Þoli ekki allan þenna dans í kringum hlutina.

jæja.. veit ekki alveg hvað ég á að segja..
já, mótmælum, en EKKI með því að brenna allt lauslegt og berja mann og annan!!

þar til síðar
yfir og út
my sister Flo - friðarsinni með meiru

p.s til hamingju með daginn Ásgerður.
Sigríđur Harpa

Gleđileg jól.. og allt ţađ..

26. desember 2008 klukkan 20:32
Já, það er best að óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Kemur seint, en kemur þó! Hvernig hafði fólk það svo um jólin? Ég hafði það ofsalega fínt. fékk ofsalega fínar og góðar gjafir - gæti ekki verið sáttari!

annars vildi ég bara kasta á ykkur kveðju með jólakortamyndinni i ár.

jólakortamyndin


Þar til síðar.
yfir og út
my sister Flo - jóla jóla jólaaaa
Sigríđur Harpa

Getum viđ lćrt af mistökum okkar?

10. nóvember 2008 klukkan 19:51
já, við erum nú víst komin heim aftur frá Spánarlandinu.. og það fyrir rétt rúmri viku síðan..  Það var ofsalega ljúft að vera út, og njóta þess að slappa af og þurfa ekki að hlusta á allt þetta krepputal í fréttum rúv og stöð2.. alveg komin með nóg af því.. reyndar las maður auðvitað alltaf veffréttamiðla eins og mbl.is og ja.. það var nú bara eignilega niðurdrepandi.

en hvað um það.. Íris vinkona er komin á klakann og byrjaði að vinna í dag.. gangi þér ofsalega ofsalega vel í nýju vinnunni Íris mín.. Ég held að allt verði betra þegar lífið er komið í smá rútínu og fastari skorður hér heima.. alltaf erfitt fyrst.. I know...

Ég var að velta því fyrir mér um daginn hvort að fólk almennt læri af mistökum sínum? hvað haldið þið. Haldið þið að íslenski framapotarar eigi eftir að læra af þeim "mistökum" sem þeir gerðu í öllum sínum fjárfestingum? Ætli íslenska bankakerfið og íslenska ríkið eigi eitthvað eftir að læra af þeirri þenslu sem átti sér stað á fjármálamarkaði? ætli við borgararnir, eigum eftir að læra, að treysta ekki hverju sem er, halda ekki að grasið sé alltaf grænna hinu megin og að hætta að halda því fram að við séum best og mest? ég veit ekki...

ég fór sem sagt eitthvað að spá í þetta út frá mjög svo asnalegu atviki sem ég lenti í fyrir allnokkru síðan.. og spurningin er hvort ég hafi lært af mínum mistökum??

Ég var sem sagt að keyra rétt hjá Smáratorgi og keyrði á bakvið gamla Elko - en þeir voru þá enn þar til húsa. Ég keyri sem sagt götun þar bak við og bíð í bílaröð eftir að komast inn á hringtorgið sem er á móti Lyfju á Smáratorgi. Þetta var nánast á háannatíma svo það var slatti mikil umferð.. hvort þetta var ekki bara á föstudegi, því mikið af bílum beygði í veg fyrir mig til að komast inn á bílaplan þar sem meðal annars er ÁTVR.. kom ekki að sök þar sem ég var stopp.. en það sem pirrar mig ofsalega í umferðinni er fólk sem virðist ekki kunna að nota stefnuljósin!! virðist vera sumum ofsalega erfitt. Hvað um það. Á akreininni á móti mér kemur hvít jeppabifreið sem að ung kona keyrir. Hún beygir - fyrir framan bílinn minn - til að fara inn á bílaplanið, og gaf ekki stefnuljós. Þetta fór eitthvað svakalega í taugarnar á mér og ég segi - svona meira við sjálfa mig en hana: "Gefðu stefnuljós, hálfvitinn þinn!" Um leið og ég sleppi orðinu sé ég ungu konuna "öskra" á móti mér "Þú er sjálf HÁLFVITI!!" og svo sannarlega var ég það! Ég held að ég hafi sjaldan skammast mín jafn mikið, og gerði mér grein fyrir því á þessu augnabliki að mín viðbrögð við stefnuljósaleysinu voru algjörlega óþörf. Shitt hvað ég skammaðist mín...

Svo.. ef svo ólíklega vill til að unga konan á hvíta jeppanum heyri af þessu - þá biðst stelpan á græna yarisnum afsökunar á orðum sínum!! skamm skamm Sigga!

en svo verð ég að segja ykkur sögu sem ég heyrði núna í síðustu viku - og þetta er sko engin lygi!!

Ein sem vinnur með mér ákvað að skella sér í sund, nánar tiltekið í Salalaugina í Kópavoginum. Stúlkan borgar sig inn í laugina og röltir inn í búningklefa þar sem hún eðlilega byrjar að afklæðast. Eitthvað var hún utan við sig og var mikið að spa í ipodinn sinn og þar sem hún stendur á brókinni, nýbúin að hneppa frá brjóstahaldaranum, er pikkað í öxlina á henni. Við hlið hennar stendur maður:
Stúlkan: "HVAÐ ert ÞÚ að gera HÉR?" (í klefanum átti hún við)
Hann: "Ja, ég vildi nú ekkert stoppa þig (við að afklæðast), en ég vildi bara láta þig vita að þú ert í KARLAKLEFANUM!"
Stúlkan: snýr bakinu að honum og segir: "viltu gjöra svo vel að hneppa aftur fyrir mig" (brjóstahaldaranum).

Þegar maðurinn var búin að hneppa fyrir hana, snýr hún sér við og sér hún ekki blasa við sér þrjá karlmenn með öskrandi standpínu, ferlega sáttir með lífið og tilveruna. Einn var þá helst sáttur við að þurfa ekki að borga fyrir þessa skemmtun!!

Stúlkan klæddi sig í snarhasti og fór, án þess að fara í sund!!

Langt síðan að ég hef hlegið svona mikið - og sú sem í þessu lenti gerir það líka, þó henni hafi nú kannski ekki verið hlátur í huga fyrst Tongue out

Jæja, það er best að gera eitthvað af viti.

þar til síðar
yfir og út
my sister Flo - sem hefur vonandi lærta af mistökum sínum... og annarra!!
Sigríđur Harpa

Madrid

28. október 2008 klukkan 20:05
já þá erum við komin til Madrid. Komum hingað á fimmtudaginn (23. okt) Föstudagurinn fór í að rölta um miðbæinn, skoða mannlífið og kíkja aðeins í búðir.

Á laugardaginn fórum við Halldór ásamt Írisi og Jose í frekar stórt "mall" eða verslunarmiðstöð hér rétt fyrir utan Madrid - Xanadu heitir það.Við Íris skoðuðum í búðirnar á meðan strákarnir kíktu á barinn og í Go Kart - tvisvar. Þeir voru sko alls ekki ósáttir með það. Held að þeir myndu alveg vilja fara með okkur aftur.
Kíktum svo aðeins út á laugardagskvöldið, en vorum þó frekar róleg. Sunnudagurinn var rólegur heima fram að kvöldmat, en þá fórum við Halldór á fótboltaleik, Real Madrid - Atletico Bilbao og unnu okkar menn (Real)  3-2. Sátum á frábærum stað, eða í annarri röð fyrir aftan annað markið. Íris vinkona vinnur með einum sem reddaði okkur miðum - já eða vinur hans lánaði okkur ársmiðana sína
Tongue out  ekki amalegt það.

Mánudagurinn var rosa fínn, gott veður. Sýndi Halldóri hvar skólinn minn er/var og við röltum svo þaðan niður í bæ. Á leiðinni fundum við Tattoo stofu sem ég fór á fyrir nokkrum árum síðan og Halldór pantaði tíma í Tattoo. Úr miðbænum kíktum við svo aðeins í gamla hverfið mitt og ég sýndi honum hvar ég bjó áður. Gott að kíkja aðeins þangað. Mikið breytt og allt orðið rosalega fínt. Búið að byggja íbúðarhús/blokkir út um allt en fyrir þá sem ekki vita voru ekkert nema yfirgefin iðnaðarhúsnæði þarna, sem dópistar sóttu mikið í - ekki mjög aðlaðandi. Að auki er komin ný metro stöð í hverfið og búið að bæta við stöðvum á línu 3 (þeirri sem við tókum alltaf) svo þetta er allt orðið rosa fínt.

Í dag, þriðjudag, var vaknað snemma - kl 9 (já það er snemmt þegar maður er í fríi!!) því Halldór átti tíma í Tattoo kl 11 - það þarf að leggja tímanlega af stað. Eini ókostuirnn var að það rignaði í allan dag og búið að vera frekar kalt úti. Við létum það nú ekki á okkur fá, röltum í miðbæinn áður en við fórum aftur á fótboltavöllinn til að fara í skoðunarferð. Íris lét okkur fá frímiða til að fara í það. Eftir það fórum við fljótlega heim, enda ég löngu orðin rennandi blaut í fæturna

þá er bara seinni hluti Madridarferðarinnar eftir. Kíkjum líklega eitthvað meira í búðir.. þið megið samt ekki halda að það sé búið að versla fyrir ALLAN peninginn.. það er alveg eitthvað eftir sko.. svo er spurning hvort maður rölti að Konungshöllinn og sýni Halldóri hana.. þetta fer nú reyndar svolítið eftir veðri. Það var búið að spá grenjandi rigningu út vikuna, en síðustu fréttir segja að það hafi breyst til hins betra.

jæja... best að hætta þessu í bili
þar til síðar
yfir og út
my sister Flo - í blautum skóm.
Sigríđur Harpa

tveir vinnudagar og svo Spánn

20. október 2008 klukkan 18:22
Já, loksins loksins er komið að því að fara aðeins út fyrir landssteinana. og hvað varð fyrir valinu - auðvitað Madrid.. enda síðasti séns að fá fría gistingu hjá Írisinni minni.

var nú ekkert allt of spennt fyrir þessu í þar síðustu viku þegar allt gengi á gjaldmiðlum fór.. ja til helvítis.. en þegar það komst meiri stöðuleiki á þetta þá fór ég að hlakka til. Tongue out Verður rosa fínt að komast aðeins í burtu.

og já.. ég ætlaði nú víst eitthvað að blogga um líkamsrækt og vigtun og þess háttar.. já ég hef sem sagt ekki stigið á vigt í nokkrar vikur núna.. á ekki svoleiðis græju heima hjá mér og hún hefur einfaldlega ekki verið til staðar í ræktinni.. ég hef samt alveg verið ágætlega dugleg að mæta.. eða já. var dugleg í síðustu viku.. fór fjórum sinnum. ekki eins dugleg vikuna á undan eða þar á undan. fór samtals þrisvar á þessum tveimur vikum..

Ákvað að fara ekki í þessari viku þar sem ég er á kvöldvakt þar til ég fer út. maður tekur bara VEL á því þegar við komum aftur heim.

Annars bara lítið að frétta.. fór í þrítugs afmæli á laugardaginn. Einn úr vinnunni sem átti afmæli og bauð okkur. Ferlega fínt.. Ég fór meira að segja í bæinn.. já ÉG fór í bæinn.. ég held að ég hafi hreinlega ekki farið á djammið í bænum í ár... mjög gaman bara.. ég er allavega sátt. Ég var nú ekkert sú hressasta þegar ég kom heim.. en það var allt í lagi samt.

æi hef voða lítið að segja..

svo ég segi bara ekki neitt.. jú nema. Elsku Magga mín.. til hamingju með daginn í dag. úúú já og Júlli frændi sem átti afmæli í gær.. úff næstum því búin að gleyma því.

þar til síðar
yfir og út
my sister Flo - letistrumpur.
Sigríđur Harpa

ohhh hvađ ég er löt..

27. september 2008 klukkan 17:50
það er alveg merkilegt hvað ég nenni ekki að blogga.. hef oft sagt þetta áður.. ég veit.. en ég er bara alveg hætt að skilja þetta.. kannski af því að ég held að það lesi enginn bloggið mitt.. eða það kommenta fáir.. en það er kannski af því að ég blogga svo sjaldan..

svo.. þetta er ég að spá í að gera:

ég er að hugsa um að halda smá dagbók yfir átakið sem ég er í.. já það er ekki ráð nema í tíma sé tekið!!

Kellingin er loksins farin að hreyfa sig. get með sanni sagt að ég hafi nánast ekki gert neitt í heilt ár!! fór reyndar í Pilates núna í mars en það gekk nú ekki allt of vel.. fór erlendis í viku á ráðstefnu, var svo veik í viku.. og þá var bara vika eftir svo ég bara sleppti henni! já letiblóðið ég.. fann reyndar að
þetta átti ekki við mig. fékk alveg rosalegan brjóssviða í þessu að ég átti fullt í fangi með að æla ekki í hverjum tíma.

En nú verð ég að gera eitthvað í  þessu! Maður er orðin algjör feitabolla og á góðri leið með að verða bara offitu sjúklingur!

Nú, kílóatala verður ekki gefin upp - nema þá að ég nái langtímamarkmiðinu mínu. Hins vegar er nú allt í lagi að gefa upp hvað maður missir, já eða um hversu mikið vigtin lækkar þegar maður vigtar sig.

Búin að vera núna í fjórar vikur og þetta gengur svona ágætlega.. mætti vera betra. Fyrstu tvær vikurnar gerðist nú andskotann ekki neitt.. enda mætti ég bara tvisvar hvora vikuna. Þriðju vikuna gerðist loks eitthvað en þá fóru þrjú kíló og var ég nú bara nokkuð ánægð með það. Mætti líka fjórum sinnum þá viku. Er búin að mæta svo fjórum sinnum þessa viku en stóð í stað þegar ég steig á viktina í morgun Óákveðinn Reyndar var þetta kannski ekkert súper góð vika.. létt æfing á mánudaginn. engin á þriðjudaginn - já fór í nudd sjáiði til! lyfti á miðvikudaginn en gat ekki klárað brennsluna þá út af brjóstsviða, sleppti á fimmtudaginn og var með nagandi samviskubit fyrir vikið. Brennsla á föstudag og svo líka í morgun.. já alveg ágætt en alltaf má gera betur.  Verð líka að vera duglegri í matnum.. er reyrndar hætt að sukka jafn mikið og við skötuhjú gerðum.. þó svo að við séum ekkert gífurlega dugleg við að elda..  Vorum reyndar að tala um að fara að gera matseðil fyrir vikuna til að fylgja eftir. held að við verðum að gera það svona til að byrja með.

en já aðeins að öðru.. Írisin mín og Jose hafa ákveðið að freista gæfunnar hér á klakanum.. já þau eru að fara að flytja til Íslands. ohh hvað ég er ánægð.. Systurnar Skorrdal sameinaðar aftur!!

og svo er bara tæpur mánuður þangað til að við förum út að heimsækja þau.. eintóm gleði bara...

jæja..best að fara að gera eitthvað af viti..

þar til síðar
yfir og út
my sister Flo - í átaki!
Sigríđur Harpa

VIVA ISLANDIA!!!!

22. ágúst 2008 klukkan 16:41
Oh my gaaaaa.. hvað ég er hamingjusöm núna.. að íslenska karlalandsliðið í hanbolta hafi unnið Spánverja gleður mig alveg óendanlega mikið!! hef ekkert á móti Spáni eða Spánverjum, þvert á móti.. finnt Spánn æðislegt land og er, eins og fyrr segir, hálfgerður spánverji í mér eftir að hafa búið þar.. en bara það að handboltalið frá 300.000 manna eyju norður í Atlantshafi skuli vinna margra milljóna manna þjóð er bara yndislegt!! Ullandi

Halldór stóð fastur á því í gær að Spánverjar myndu vinna með 8 marka mun..oh nei oh nei.. ég var sigurviss allan tímann! ok svolítið hrædd á tímabili - it ain't over until the fat lady has sung!!

Ég var með tárin í augunum þegar flautað var til leiksloka - þvílík gleði.

Á sunnudaginn ætla einhverjir að hittast hér í vinnunni og horfa á úrslitaleikinn - og ég ætla sko að mæta.. stemmingin sem myndaðist hér í hádeginu var ótrúleg. Svona leiki á maður ekki að horfa á einn heima hjá sér!

læt þetta gott heita..
þar til síðar
over and out
my sister Flo - í sannkallaðri sigurvímu
Sigríđur Harpa

hitt og ţetta.

20. ágúst 2008 klukkan 17:43

Sælt veri fólkið...

best að byrja á byrjuninni.. Takk allir fyrir afmæliskveðjurnar í gær í gegnum fésbókina, sms, msn, símtöl, tagged... og allt annað.. þakka líka þeim sem reyndu að senda mér hugskeyti þó svo að þau hafi nú ekki borist þar sem minn hæfileiki er mjög illa þróaður Ullandi

annars var þetta rosa fínn dagur.. fékk nokkrar afmælisgjafir, bakaði vöfflur og gerði smá brauðrétt og einhverja kaloríu sprengju fyrir familíuna í gærkvöldi kíkti aðeins á sjónvarpskassann og svo bara að sofa... ekki slæmur dagur.. enda getur maður nú ekki farið að vaka eitthvað frameftir í einhverri taumlausri gleði - kona komin á fertugsaldur.. ji.. bara 9 ár í fjörtíu árin.. jæja.. maður heldur bara svaðalegt partý þá.. heheh

var annars í tvöföldu fertugsafmæli á laugardaginn og hrikalega var gaman.. það var sko hlljómsveit og allt.. já strákarnir í Svitabandinu stóðu sko alveg fyrir sínu!!

Svo er alveg spurning hvort maður geri ekki eitthvað öðruvísi og haldi bara upp á 32 og hálfs árs afmælið eða eitthvað.. hélt nenfilega ekkert partý þegar ég varð þrítug.. var reyndar með partý þegar ég var 28 ára.. og það var hrikalega skemmtilegt partý!!

að öðru..

mikið svakalega er gaman að fylgjast með strákunum í handbolta landsliðinu... samhentari landsliðshóp held ég að ég hafi nú bara ekki séð...ótrúlega gaman... vona svo sannarlega að við vinnum Spánverjana á föstudag... þó ég sé mikill spánverji í mér, þá finnst mér fátt skemmtilegra en að vera betri en þeir í einhverju!! Ullandi

svo erum við Halldór búin að kaupa okkur ferð til Madrid í lok okt.. verðum í 10 daga... eintóm gleði.

svo er það bara menningarnótt næstu helgi.. er boðið í þrítugsafmæli á föstudagskvöldið en annars er laugardagskvöldið óráðið... kemur í ljós

læt þetta bara gott heita.

Þar til síðar
yfir og út
my sister Flo - afmælisstelpa.

Sigríđur Harpa

helgin...

11. ágúst 2008 klukkan 12:57
Já þetta var hin fínasta helgi... Skelltum okkur norður í Húnavantssýslu á laugardagsmorguninn þar sem það var (Fj)Ölskyldumót hjá okkur á laugardagskvöld. Ég og Ómar hittum nokkra úr ættinni rétt eftir hádegi á laugardeginum til að fara yfir lögin þrjú sem átti að syngja og spila.. Ómar hafði samið texta við eitt lag og Mundi samdi texta við lag með Sniglabandinu og svo samdi hann líka lag og texta.. þvílík gleði og gaman.. Ölskyldumótið heppnaðist vel í alla staði.. borðað, sungið, lesnir pistlar.. þar á meðal einn frá útlandinu, og nýjir makar kynntir til sögunnar. Ómar bróðir sá um kynna fólkið og bullið sem rann upp úr honum.. ótrúlegt að fólk geti spunnið svona mikið á staðnum... Nú svo var farið í fótbolta um miðnætti.. kannski aðeins of seint þar sem birtuskilyrði voru vægast sagt mjög léleg.. enda lá maður meira í grasinu en stóð... Einhverjir skruppu í gönguferð um nóttina, en þegar þær frænkur (Ása, Heddý og Bobba) höfðu ekki skilað sér einum og hálfum tíma síðar þá hljóp Skúli frændi út að leita.. já þá voru þær aðeins villtar.. heheh
Sem sagt, frábært kvöld í alla staði.. og maður sér það að við gætum bara stofnað stórhljómsveit innan fjölskyldunnar.. mikið af frábæru tónlistarfóli..

Á sunnudeginum fóru Halldór, Ómar, Hjalti og krakkarnir hans Hjalta - Karen, Erik og Elmar - að skoða hestana og aðeins á hestbak.. litlu púkunum fannst þetta algjört æði.. Hjalti og Karen skelltu sér svo aðeins á bak, og svo fékk Halldór aðeins að prófa.. já þetta verður samt hugsanlega hans síðasta hestaferð.. því kallinn datt af baki... Ómar kom allt í einu hlaupandi heim að bæ og bað um að fá lánaðan bíl.. Halldór og Hjalti duttu af baki... ég rauk uppeftir með honum og þá lá Hjalti út við girðingu og Halldór ný staðinn upp. Dóri man reyndar ekkert eftir þessu, man ekki eftir því að ég hafi komið upp að húsum.. man að einhver sagði að pabbi væri kominn líka.. man ekki hvernig hann komst heim í hús.. man ekki eftir að hafa farið inn í eldhús.. man bara þegar hann stóð upp úr svefnsófanum.. frekar krabúleraður kallinn.. og Hjalti draghaltur.. þegar Hjalti sá í hvað stefndi hjá Dóra þá fór gleymdi hann alveg sjálfum sér við það að reyna að leiðbeina Dóra og sá ekki hvert sinn hestur stefndi....

já sem sagt.. frábært helgi.. fyrir utan svona síðustu 2 klukkutímana..

annars er maður á síðustu metrunum með sumarfríið... byrja að vinna á fimmtudaginn... svo það er best að hætta í bili og njóta síðustu daganna...

þar til síðar
yfir og út
my sister Flo - hjúkrunarkona í sumarfríi
Sigríđur Harpa

Klukkan

Auglýsing

Sumarfrí

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...